Heyskapur hófst 1. júlí. Uppskera hefur verið nokkru minni en fyrri ár en þar vegur helst að sáðgresi hefur látið undan fyrir fyrir harðgerðari plöntum eins og snarrót. Sólveig Björg hirðljósmyndari hefur staðið vaktina í heyskapnum og má sjá afraksturinn á myndasíðu.
Archive | Björg & bú
RSS feed for this sectionSauðburður
Sauðburður er nú hafinn á Björgum. Óvænt drottning kom í heiminn 25. apríl undan gemlingi og er uppruni þess nú í rannsókn. Segja má að sauðburður hafi þó hafist 7. maí þegar sæðingaár tóku að bera og eru hátt í 10 ær bornar þann 12. maí. Frjósemi er enn sem komið er í góðu meðallagi [...]
Snati leikur sér
Snati fékk lítið að eltast við kindur í sumar þannig að hann elti bara öldurnar í staðinn
Göngur
Farið var í 1. göngur 11. og 12. september. Vaskur hópur gangnamanna, alls 12 manns bæði vanir menn og nýgræðingar fóru út í Víkur eldsnemma á laugardagsmorgni. 2 menn fóru í Bakranga, 2 í Vesturdal og 1 í Austurdal