Gönguferð í skógræktinni
Gönguferð í skógræktargirðingunni á Björgum er alltaf ánægjuleg sama hvernig viðrar eða hvaða árstími er.
Hávaxin tré af ýmsum gerðum gefa gott skjól fyrir norðanáttinni og því virðist oft vera logn í trjálundunum þótt vindur blási fyrir utan. Elstu trén voru gróðursett fyrir 50-60 árum og eru því mörg orðin býsna hávaxin.
Elstu trén hafa gefið gott skjól fyrir trjáplöntur sem gróðursettar hafa verið á seinni árum eins og sjá má á þessum hávöxnu og beinvöxnu lerkitrjám sem gróðursett voru sumarið 1991. Plönturnar voru settar niður í skjóli við gamlan lerkilund þar sem mörg trjánna eru ansi kræklótt og barin af norðanáttinni.
Fuglar lifa góðu lífi í skógræktinni eins og sjá mátti á þessum auðnutittlingi sem flaug á milli lerkigreina og virtist finna nóg góðgæti í gogginn. Einnig heyrðist í þröstum og músarrindlum en rjúpa sem oft gerir sér hreiður á svæðinu lét ekki sjá sig eða heyra í þessari gönguferð.
Lúpínan í girðingunni er ekki eins mikill aufúsugestur í hugum margra. Hún er þó búin að þekja melana sem voru efst í girðingunni og ýmsar plöntur dafna vel í lúpínubreiðunum s.s. birki, loðvíðir, maríustakkur og blágresi.
Eftirtektarverðar eru stórar breiður af blágresi sem lita neðstu brekkurnar fallega fjólubláar. Rætt var á bænum hverju mætti þakka að blágresið er svona gróskumikið þarna en niðurstaða fékkst ekki í því máli. Engin beit hefur verið á þessu svæði í allmörg ár sem gæti mögulega verið skýring en þó má einnig sjá blágresisbreiður á svæðum þar sem beitt er.
Nokkrar fleiri myndir úr gönguferðinni um skógræktargirðinguna má sjá á Flickr